Refund policy

Skilaréttur

Þú hefur 14 daga skilarétt frá þeim degi sem þú færð bókina í hendur, samkvæmt lögum um neytendasamninga. Bókinni skal skilað ónotaðri og í sama ástandi og hún var við afhendingu.

Til að nýta skilaréttinn skaltu hafa samband við okkur áður en þú sendir bókina til baka. Kaupandi greiðir sendingarkostnað við skil, nema bókin sé gölluð eða röng vara hafi verið send.

Endurgreiðsla fer fram innan 14 daga frá því að við fáum bókina til baka, með sama greiðslumáta og notaður var við kaupin.

Gölluð eða skemmd eintök

Ef bókin er gölluð eða skemmdist í flutningi skaltu hafa samband við okkur sem fyrst. Við sendum þér nýtt eintak eða endurgreiðum að fullu, þér að kostnaðarlausu.