„Viktor og stærsti leikurinn“ er skrifuð af Björk Björnsdóttur. Björk er kennari, fótboltaþjálfari, fyrrverandi fótboltakona og tveggja barna móðir.
Hún þekkir vel, bæði í kennslustofunni og á vellinum, hvernig fiðrildin í maganum geta farið á flug rétt fyrir stóru stundirnar. Bókin er skrifuð til að hjálpa börnum að tala um þessar tilfinningar og minna þau á að það mikilvægasta sé að þora að reyna.
Bókin er gefin út af Stífluhringnum.